Digital heimaþjónusta

Hvað er Digital heimaþjónusta?
Þú færð þinn persónulega netþjón til að koma heim til þín og leysa úr algengum tæknivandamálum. Dæmi um slík verkefni eru uppsetningar á sjónvarpstækjum, vírushreinsun, uppsetning og tengingar á tölvubúnaði, prentara, heimabíói, flakkara, stillingar á internetbúnaði, uppsetningar á hugbúnaði s.s. Microsoft Office svo nokkur dæmi séu tekin.
Hvað kostar Digital heimaþjónusta?
Heimsóknin kostar kr. 11.600,- m/VSK pr. fyrstu klukkustund auk aksturs kr. 990,- Greitt er kr. 5.400,- m/VSK fyrir hverja hálfa klukkustund umfram þann tíma.
Hvar og hvenær er Digital heimaþjónusta í boði?
Digital heimaþjónusta er aðeins í boði á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustan er í boði alla virka daga frá kl. 09:00 - 21:00. Mögulegt er að fá þjónustu utan þess tíma s.s. á laugardögum og sunnudögum en þá er greitt 20% helgarálag til viðbótar.
Hvernig nýti ég mér Digital heimaþjónustu?
- Kynntu þér skilmála Digital heimaþjónustu hér að neðan.
- Hafðu samband við okkur í síma 550 4000. Þú færð samband við tæknimann og í sameiningu vinnið þið glögga þarfagreiningu á verkefninu til að gefa tæknimanni sem gleggsta mynd af því viðfangsefni sem er til umfjöllunar.
- Þú getur einnig sent okkur tölvupóst á netfangið fyrirspurn@digital.is og óskað eftir að tæknimaður hafi samband við þig símleiðis á ákveðnum tíma til að ræða við þig um viðfangsefnið.
- Þegar greining hefur átt sér stað ákveður þú í samráði við tæknimann nákvæma tímasetningu á heimsókninni.
Fullnýttu þér tæknina með okkar aðstoð!
Tæknimenn Þjónustuvers okkar að Ármúla 1 og tæknimenn Digital heimaþjónustu aðstoða þig við hvers kyns tæknileg viðfangsefni sem upp koma. Það skiptir ekki máli hvar þú keyptir búnaðinn, við aðstoðum þig á alla lund.
Dæmi um þau viðfangsefni sem við sinnum fyrir þig:
Tæknimenn Þjónustuvers okkar að Ármúla 1 og tæknimenn Digital heimaþjónustu aðstoða þig við hvers kyns tæknileg viðfangsefni sem upp koma. Það skiptir ekki máli hvar þú keyptir búnaðinn, við aðstoðum þig á alla lund.
Dæmi um þau viðfangsefni sem við sinnum fyrir þig:
- Við veitum heimaþjónusta 12 tíma á dag, fimm daga vikunnar og meira til ef þess er óskað.
- Við rekum öflugt þjónustuver að Ármúla 1 sem er opið 6 daga vikunnar.
- Við setjum upp sjónvarpstæki, göngum frá tengingum og stillum fjarstýringuna.
- Við björgum gögnum af hörðum diskum, minnislyklum og -kortum
- Við lagfærum prentara sem neita að prenta
- Við tengjum fyrir þig prentara og jaðartæki og setjum upp nauðsynlegan hugbúnað
- Við hjálpum þér að tengjast Internetinu
- Við lagfærum vírusvörnina á tölvunni þinni eða setjum upp nýja
- Við setjum upp fjölpóstsíur (SPAM) og stillingar fyrir örugga internetnotkun
- Við fjarlægjum óvelkominn hugbúnað
- Við kennum þér að nota stafrænu myndavélina og hvernig hún vinnur með tölvunni þinni
- Við tengjum tölvuna þína á þráðlausa netið heima eða á skrifstofunni
- Við hjálpum þér að vernda og afrita gögnin þín
- Við yfirförum stýrikerfið í tölvunni
- Við uppfærum tölvuna þína
- Við ráðleggjum um vélbúnað
- Við ráðleggjum um hugbúnað
- Við tengjum vélbúnað
- Við setjum upp hugbúnað
- Við setjum upp MP3 spilarann eða annan stafrænan jaðarbúnað
...og svo miklu miklu fleira!
Aðstoð við heimabíóið?
- Við aðstoðum þig við hönnun og uppsetningu á heimabíókerfinu
- Við ráðleggjum þér hvaða búnaður er heppilegur
- Við setjum upp einstaka hluti eða kerfið í heild sinni
- Við setjum upp hátalarakerfið
- Við tengjum hlutina saman svo þeir vinni rétt
- Við stillum sjónvarpstækið
- Við forritum fjarstýringuna
- Við kennum þér á kerfið
Skilmálar Digital heimaþjónustu
- Greiðsla fyrir veitta þjónustu fer fram á vettvangi að verki loknu. Aðeins er tekið við greiðslukortum (debet eða kredit).
- Við greiðslu fær viðskiptavinur greiðslukvittun úr posavél. Næsta virka dag póstleggur Digital fullbúinn reikning með verklýsingu til viðskiptavinar.
- Hver heimsókn kostar kr. 11.600,- m/VSK auk aksturs kr. 990,-. Innifalið í því gjaldi er viðvera tæknimanns í allt að eina klukkustund.
- Greitt er kr. 5.400,- m/VSK fyrir hverja hálfa klukkustund umfram þann tíma.
- Greitt er sérstaklega fyrir efni og aðrar vörur sem notaðar kunna vera til að leysa viðkomandi verkefni. Dæmi um slíkt getur verið kapalefni, vírusvörn, ýmis hugbúnaður eða annað sem viðskiptavinur samþykkir að notað verði.
- Ef færa þarf búnað til frekari viðgerðar og/eða skoðunar í þjónustuver Digital er greitt að fullu fyrir heimsóknina en frekari viðgerð/þjónusta í þjónustuveri er veitt með 25% afslætti.
- Ef tæknimaður nær ekki að leysa viðfangsefnið á staðnum og/eða viðskiptavinur vill ekki að búnaðurinn verði færður til viðgerðar í þjónustuver Digital fellur niður fyrrnefnt gjald fyrir heimsóknina en í staðinn greiðir viðskiptavinur skoðunargjald að upphæð kr. 4.000,- m/VSK auk aksturs kr. 990,-
- Viðbragðstími er háður álagi hverju sinni en leitast er við að sinna samdægurs þeim verkbeiðnum sem berast fyrir kl. 12:00 og næsta virka dag þeim sem berast eftir kl. 12:00.

