Digital fyrirtækjaþjónusta

Allur tölvubúnaður þarfnast viðhalds. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær.  Aðeins með reglubundnu viðhaldi og skynsamlegu vali á tækjabúnaði geta fyrirtæki hámarkað virði þeirrar fjárfestingu sem ráðist er í hverju sinni.  Það er mikilvægt fyrir þitt fyrirtæki að huga vel að þessum þáttum og sérstaklega viljum við höfða til ykkar sem ekki hafið sérstaka tölvudeild.  Við getum t.d. verið ykkur innanhandar með reglubundnum heimsóknum til að fyrirbyggja hugsanleg vandræði og svo erum við auðvitað ávallt í viðbragðsstöðu ef eitthvað bregður út af.

Aðalsmerki okkar hjá Digital er afburðarþjónusta.  Við höfum á að skipa öflugum hópi fagmanna sem vinna með þér að fyrirbyrggjandi viðhaldi og standa einnig klárir þegar kallið kemur.

Kynntu þér vel þá þjónustuþætti sem við höfum upp á að bjóða og hafðu svo samband við okkur í síma 550 4000 eða með tölvupósti á netfangið fyrirspurn@digital.is

Digital ráðgjöf
Heimsókn ráðgjafa Digital.  Farið er almennt  yfir helstu þætti er varða tölvubúnað og annað sem snýr að upplýsingatækni fyrirtækisins.   Í kjölfar heimsóknarinnar er unnin skýrsla sem inniheldur þarfagreiningu, tillögur að úrbótum og áætlun um endurnýjun til lengri tíma ef þess gerist þörf.

Digital netþjónusta
Tæknimenn Digital eru til reiðu að aðstoða þig við uppsetningu á netkerfi fyrirtækisins.  Slík verkefni borgar sig að skipuleggja vel og þú ættir því að hafa samband við okkur áður en farið er af stað, annars vegar til að kerfið þjóni örugglega þeim tilgangi sem ætlast er til og einnig til þess að hægt sé að gera raunhæfa fjárhagsáætlun yfir verkefnið sem stenst.

Digital notendaþjónusta
Þótt flestir okkar viðskiptavina á þjónustusviðinu séu fyrirtæki sem ekki hafa sérstaka tölvudeild eða tölvuumsjónarfólk þá bjóðum við að sjálfsögðu einnig þjónustu til slíkra fyrirtækja.  Það getur t.d. komið sér vel fyrir kerfisstjóra og/eða tölvudeild að hafa aðgang að okkar tæknimönnum á álagstímum í stað þess að bæta við fólki.  Það getur oft á tíðum verið skynsamlegur kostur að fela okkur ýmis konar verkefni í almennri notendaþjónustu s.s. dagleg aðstoð við notendur, stofnun nýrra starfsmanna, uppsetningar á tölvum og prenturum og svo mætti lengi telja.  Í mörgum tilfellum er hægt að aðstoða notendur í fjarvinnslu og sú þjónusta er einnig í boði hjá Digital.

Digital öryggi
Í þessari heimsókn er m.a. farið yfir eftirfarandi þætti:  Ástand vírusvarna, afritunarmál, varnir gegn fjölpósti (spam), öryggi staðarnets, aðgangsmál og stýringar og ástand eldveggs
Í kjölfar heimsóknarinnar er unnin skýrsla sem inniheldur þarfagreiningu og tillögur að úrbótum.

Digital prentlausnir
Í þessari heimsókn er m.a. farið yfir eftirfarandi þætti: Ástand prenttækja s.s. prentara, ljósritunarvéla og faxtækja, tekin út staða á líftíma tækja og íhluta, mat lagt á viðhaldsþörf og farið yfir rekstrarvörur.     Í kjölfar heimsóknarinnar er unnin skýrsla sem inniheldur þarfagreiningu, tillögur að úrbótum og áætlun um endurnýjun til lengri tíma ef þess gerist þörf.

Digital hugbúnaður
Skoðun á leyfismálum s.s. varðandi Microsoft leyfi á netþjónum og útstöðvum, notendahugbúnað s.s. Microsoft Office o.fl., vírusvarnir og öryggishugbúnað.  Það er ákaflega brýnt að fyrirtæki séu með sín hugbúnaðarleyfi í réttum farvegi og allir stjórnendur vijla að sjálfsögðu vera með löglegan hugbúnað enda mikilvægt að geta notið nýjustu útgáfa og uppfærslna.

Digital vélbúnaður
Í þessari heimsókn fer fram ástandsskoðun tölva m.t.t. minnis, harða disksins, skjákorts ofl.,
ástandsskoðun netþjóna m.t.t. minnis, diska ofl., ástandsskoðun annarra jaðartækja eftir nánara samkomulagi.  Í kjölfar heimsóknarinnar er unnin skýrsla sem inniheldur þarfagreiningu, tillögur að úrbótum og áætlun um endurnýjun til lengri tíma ef þess gerist þörf.

Digital verslunarkerfi
Í þessari heimsókn er framkvæmd þarfagreining varðandi verslunarkerfi og tengd jaðartæki s.s. skanna, vogir o.fl.  Margir eru að skipta út gömlu sjóðsvélunum og farið er yfir hvað það felur í sér ef við á.  Í kjölfar heimsóknarinnar er unnin skýrsla sem inniheldur þarfagreiningu, tillögur að úrbótum og áætlun um endurnýjun til lengri tíma ef þess gerist þörf.

Digital gagnabjörgun
Digital er samstarfsaðili Ibas sem er leiðandi á sviði gagnabjörgunar og gagnaeyðingar. Þjónustuver Digital er búið tæknibúnaði frá Ibas sem endurheimtir gögn af helstu geymslumiðlum s.s. minniskortum og hörðum diskum.  Nokkur dæmi um dagleg gagnabjörgunarverkefni okkar:
:: Stafrænar myndir og myndbönd úr myndasafni fjölskyldunnar
:: Niðurhalaðar skrár s.s. tónlist, kvikmyndir og hugbúnaður
:: Tengiliðalistar og dagbókarfærslur
:: Verkefni og námsgögn
:: Mikilvæg tölvupóstsamskipti og bréf

Digital flutningur
Er fyrirtækið að flytja sig um set?  Tæknimenn Digital eru þér innan handar ef til þess kemur að þú þurfir að koma fyrirtækinu fyrir á nýjum stað.  Við tökum að okkur flutning á öllum tækni- og tækjabúnaði, uppsetningu hans á nýjum stað, tölvulagnir og annað sem nauðsynlegt er í slíku verkefni.  Með slíkri aðstoð tryggir þú að starfsemi fyrirtækisins verði eins óskert og kostur er og starfsfólk þitt getur einbeitt sér að því sem það gerir best.