Vörur

Digital býður viðskiptavinum sínum fjölbreytt vöruúrval á sviði tölvu- og tæknibúnaðar og vonumst við til að þessi nýja vefsíða okkar endurspegli þær lausnir sem við höfum fram að færa.
Við leggjum áherslu á að bjóða þann búnað sem við veitum örugga og vandaða þjónustu á og þar má nefna tölvubúnað (fartölvur, borðtölvur, skjái og netþjóna) frá Fujitsu, prentlausnir frá OKI og Xerox, verslunarkerfi frá Toshiba Tec og rekstrarvörur í allar helstu gerðir prentara svo eitthvað sé nefnt.
Við munum vinna að því hörðum höndum á næstu vikum að gera þessum vörum greinargóð skil hér á vefnum en við hvetjum þig til að hafa samband við okkur ef þú hefur spurningar varðandi vörur og/eða þjónustu og ekki væri síður dýrmætt að fá frá þér ábendingar um það sem betur má fara.
Til gamans má geta þess að þessi nýja vefsíða okkar var unnin í samvinnu við snillingana hjá IO ehf. og tók hún aðeins nokkra daga í smíðum!

