Um okkur

:: 10.08.2010
Digital leitar eftir samstarfi við fólk með þekkingu á Joomla umhverfinu. Við lumum á nokkrum hugmyndum sem við viljum koma í framkvæmd og leitum því nú að fólki sem er tilbúið til að vinna að skemmtilegum og skapandi verkefnum með okkur. Áhugasamir hafi samband við Guðmund í tölvupósti á netfangið: gudmundur@digital.is
:: 01.07.2010 Flutningur og breytingar
Frá og með 2. júlí 2010 flutti starfsemi Digital frá Ármúla 1. Við flutningin voru gerðar þær breytingar á kjarnastarfseminni að þeirri þjónustu sem tilheyrt hefur tölvuverkstæði Digital var hætt. Sú þjónusta verður framvegis í tryggum höndum þjónustufyrirtækisins Tölvuvaktin | Sími: 856-4510 en fyrirtækið hefur m.a. á að skipa þrautreyndum tæknimönnum af tölvuverkstæði Digital. Digital heimaþjónusta mun einnig flytjast yfir til Tölvuvaktarinnar.
Við minnum viðskiptavini ELKO á að tölvuverkstæðið Nördinn annast nú um þá þjónustu sem áður var veitt á tölvuverkstæði Digital.
Um okkur
Digital einbeitir sér að sölu og ráðgjöf á búnaði og lausnum fyrir fyrirtæki s.s. rekstrarvörum, tölvum, netþjónum, prentlausnum, verslunarkerfum og öðru því sem viðkemur. Digital rekur þjónustudeild sem sinnir prenturum, fjölnotatækjum, ljósritunarvélum, verslunarkerfum og allri almennri tölvu- og tækniþjónustu við fyrirtæki.
Betri þjónusta!
Markmið Digital er að veita framúrskarandi þjónustu og það er og verður aðalsmerki okkar. Lögð er áhersla á gott aðgengi að starfsfólki, vörum og öllum upplýsingum sem nýst geta viðskiptavinum okkar.

