Þjónusta

Digital er alhliða þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni og hefur á að skipa fagfólki sem miðlar af þekkingu sinni til þín. Að auki erum við í samstarfi við öflug þjónustufyrirtæki um ýmis konar sértæk verkefni s.s. hýsingar og internettengingar. Skoðaðu vandlega þá þjónustuþætti sem hér eru kynntir og hafðu svo samband við okkur í síma 550 4000, sendu okkur tölvupóst eða kíktu til okkar í spjall að Ármúla 1.
28.06.2010 | Digital flytur
Frá og með 2. júlí 2010 flytur starfsemi Digital frá Ármúla 1. Vegna flutninga verður lokað hjá okkur fram til miðvikudagsins 1. september en viðskiptavinir ná að sjálfsögðu sambandi við okkur í síma 550 4000 og með tölvupósti á netfangið baldvin@digital.is
Við flutningin verða gerðar þær breytingar á kjarnastarfseminni að þeirri þjónustu sem tilheyrt hefur tölvuverkstæði Digital verður hætt. Sú þjónusta verður framvegis í tryggum höndum þjónustufyrirtækisins Tölvuvaktin | Sími: 856-4510 en fyrirtækið hefur m.a. á að skipa þrautreyndum tæknimönnum af tölvuverkstæði Digital. Digital heimaþjónusta mun einnig flytjast yfir til Tölvuvaktarinnar.
02.06.2010 | Tilkynning til viðskiptavina ELKO
Frá og með 7. júní 2010 flyst ábyrgðarþjónusta á tölvubúnaði fyrir viðskiptavini ELKO á tölvuverkstæðið Nördinn að Fákafeni 9 (efri hæð). Þjónustunúmer Nördsins er 571 2800.

